Að sjálfsögðu er Björn Bjarnason á móti lýðræðislegum vinnubrögðum

Maðurinn sem skrifaði hvað mest um Sovét einræðið og forræðishyggju kommúnismans er fallinn í sömu gryfju sjálfur.  Hann er vesælt handbendi kvótakónga og annarra afturhaldsafla í þjóðfélaginu.  Það er svo sem ágætt að Sjálfstæðisflokkurinn þekki ekki vitjunartíma sinn.  Nú virðist sem þjóðin sé að vakna af Þyrnirósarsvefninum og sé í stórum stíl að hafna flokki sem setur sérhagsmuni ofar heildarhagsmunum.  Sem hugsar um það eitt að halda völdum hvað sem það kostar.  Síðasta skoðanakönnun Gallup í Reykjavík er vitni um að nú sé verið að snúa baki við þessum viðhorfum.

Ég held að Björn Bjarnason sé álíka hræddur við þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB og hann var við þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlafrumvarpið á sínum tíma.

Þar voru Sjálfstæðismenn flengdir með blautri tusku og verða það líka í þessu máli.

Þjóðin vill ekki skítareddingapólitík Sjálfstæðismanna í efnahagsmálum.

Sennilega er þjóðin líka búin að fá nóg af því að hafa drykkfelda lögfræðinga úr þessum flokki sem seðlabankastjóra.


mbl.is Á móti þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Johnny B Good
Johnny B Good

Styð Liverpool - af því Bítlarnir eru þaðan.  Styð Skagamenn - af því að þeir eru bestir.  Finnst gaman að ræða um pólitík og fleira því tengdu.

Færsluflokkar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband