13.2.2008 | 15:55
Kanada - flóttamannanýlenda fyrir misheppnaða borgarstjóra?
![]() |
Markús Örn skipaður forstöðumaður Þjóðmenningarhúss |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.2.2008 | 15:44
Tökum upp Evru - göngum í ESB á morgun
Helst fyrir hádegi á morgun. Það myndi leysa margan vandann. Til dæmis myndum við losna við Davíð Oddsson á eftirlaun og vonandi úr opinberri umræðu. Hann kemur örugglega með ótíðindi á morgun og dæsi yfir heimsku þjóðar sinnar - þessi líka besservisserinn. Það myndi leysa þjóðina undan ánauð kvótakerfisins og gefa því möguleika að nýliðun yrði í stétt útgerðarmanna í stað núverandi miðaldalénsskipulags. Umfram allt myndi það losa heimilin undan helsi okurlána sem eru lögvernduð af misvitrum alþingismönnum, núverandi kerfi er óþolandi og virkar t.d. alls ekki sem hagstjórnartæki. Þar sem stýrivextir eru notaðir sem hagstjórnartæki er ekki verðtrygging. Þar taka neytendur lán á háum eða lágum vöxtum sem eru óumbreytanlegir þar til lán er að fullu greitt.
Hér á landi hækka eða lækka vextir eftir duttlungum Davíðs Oddssonar sem nú er að koma efnahag landsins upp á blindsker.
![]() |
Kallar eftir skýrri evrustefnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.2.2008 | 10:38
Ekki einu sinni nálægt Siglufirði
Þetta kemur örugglega ekki til greina af hálfu samgönguráðherra - þetta er ekki á leiðinni til Siglufjarðar. Sennilega þurfa þessi gatnamót að vera þar til að þau komist í framkvæmt. Sama hvað Villi og Gaukurinn (Ólafur F) segja.
Ég legg svo til að vegfarendur hætti að borga í Hvalfjarðargöngin ef ekki verður lagt á veggjald í Siglufjarargöngunum.
![]() |
Mislæg gatnamót á dagskrá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 13. febrúar 2008
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar