Væri ekki rétt að fá álit umboðsmanns Alþingis á þessari ráðningu.

Sjálfstæðismenn virðast almennt hafa þann skilning á pólitísku valdi og ábyrgð að pólitíska valdinu eigi að beita til að hygla vinum sínum og flokksbræðrum.  Voru þessir sem sóttu um ekki feitar konur?  Gísli Marteinn segir að ekki sé hægt að bjarga feitum konum með því að setja þær á háa hæla, þær eru jafn forljótar eftir sem áður segir hann:  (Vill bara að þessari skoðun Gísla Marteins Baldurssonar sjálfmenntaðs stjórnmálafræðings sé haldið á lofti við öll tækifæri)

Umfram allt þyrfti umboðsmaður Alþingis að reyna að skýra út fyrir Sjálfstæðismönnum og siðblindingjanum Ólafi F Magnússyni hvernig ber að ekki beita pólitísku valdi.


mbl.is Spurt um ráðningu Jakobs Frímanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf ærlega tiltekt og naflaskoðun

Á síðustu 3 árum hafa komið upp 3 alvarleg mál í Austurríki.  Fyrst Kampusch sem var rænt og hún lokuð inni í 8 ár.  Það mál má að vísu fyrirgefa yfirvöldum.  Síðan finnast 3 börn í kjallara hjá geðsjúkri móður sem tók þau úr skóla og ól þau upp eins og dýr í myrkum kjallara.  Þar hverfa 3 börn úr skóla og úr samfélaginu án þess að yfirvöld geri nokkuð í málinu.  Síðan birtast 3 börn á tröppum hjá þessum Fritzl níðingnum án þess að yfirvöld rannsaki málið neitt frekar.

Þetta er vægast sagt afar slæleg frammistaða og þessu ríki til skammar.

Svo fær mig ekkert til að trúa því að þessi maður hafi verið án vitorðsmanns eða manna.  Hann kaupir mat og klæði á 4 án þess að nokkur verði þess var.

Hann er í kjallaranum löngum stundum.

Hann fer í löng frí - hver sá um tengslin á þeim tíma?

Hvað með úrgang?

 Alla vega er sofandahátturinn algjör.

Austurríkismenn - nú er komið að því að athuga alla kjallara landsins og að skrásetja landsmenn með upprunavottorði.

 


mbl.is Kanslari Austurríkis óttast orðspor landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drykkfeldur lögfræðingur - Dagfinnur dýralæknir

Ætli það sé gæfulegasta stjórn efnahagsmála heillar þjóðar að hafa þar í æðstu stöðum.  Drykkfelldan lögfræðing með pungapróf í lögfræði sem Seðlabankastjóra og Dagfinn dýralækni sem fjármálaráðherra - eða fésmálaráðherra eins og pabbinn var.

 Dugar kannski í Matadorspili ......


mbl.is Alvarleg staða efnahagsmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítareddingar Sjálfstæðisflokksins

Enn og aftur þarf þjóðin að taka á sig byrðar vegna efnahagsóstjórnar Sjálfstæðisflokksins.  Það fer að verða nauðsynlegt vegna öryggis þjóðarinnar að koma þessum flokki frá völdum.  Efnahagsstjórn liðinna ára hefur byggst á fortíðarreddingum og þjónkun við útgerðarauðvald og spákaupmenn.  Bankar voru "seldir" og kaupverð dugði ekki einu sinni fyrir málverkunum sem gleymdist að undanskilja við sölu.  Síldarverksmiðjur Ríkisins voru seldar og söluverð nam ekki hagnaði á fyrsta ári hjá nýjum eigendum. 

Það má ekki ræða um einu varanlegu lausnina - nei það skal stela öllu af þjóðinni fyrst.

Efnahagsstjórninni væri best borgið með því að Samfylkingin þegi segir Steingrímur Sigfússon - þetta lýsir nú best gáfnafarinu hjá þeim ágæta manni.

Sennilega á þjóðin ekki betra skilið - hún kaus þessi ósköp yfir sig.

Ætli sé enn möguleiki á að fá jarðnæði á Jótlandsheiðum - þetta er verra en Móðuharðindin forðum.


mbl.is Seðlabankinn hækkar stýrivexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Himinháir stýrivextir - hvað með næstu innrás?

Samkvæmt Drottni allsherjar, - Davíð Oddssyni þá var gerð árás á íslensku krónuna og veðjað á fall og hrun bankakerfisins.  Halda menn að þessir gamblerar hafi gefist upp?  Þeir undirbúa sig bara betur næst og þá verður fallið hærra og hrunið meira og skellurinn stærri.

Er ekki kominn tími á að fara í raunhæfari aðgerðir.  Sækjum um aðild að EB og tökum allan pakkann.  Núverandi ástand er óþolandi.  Það er ekki líðandi ástand fyrir heila þjóð að efnahagsstjórnun felist eingöngu í fortíðarreddingum.

Farðu bara í frí Davíð - Strax


mbl.is Spáir vaxtahækkun á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð - Ertu að missa vitið?

Meðan allir aðrir lækka stýrivexti til að róa sína markaði, þá hækkar Íslenski Seðlabankinn sína.  Sennilega er það alveg hárrétt sem skrifað var í Daily Telegraph að íslenska hagkerfið sé baneitraður vogunarsjóður sem enginn ætti að koma nálægt eða leggja nafn sitt við.  Á að setja heimili landsins á hausinn til að þessi gráhærði geðsjúklingur haldi vinnunni?  Ég skora á menn að fara að safna undirskriftalistum til að fá þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn að EB.  Það er löngu orðið ljóst að íslenskir ráðamenn hafa misst tökin á efnahagsstjórn í landinu undir "öruggri" stjórn Sjálfstæðisflokksins og því fyrr sem við komumst í EB, því betra.  Hendum krónunni og tökum upp Evru.
mbl.is Stýrivextir hækka í 15%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipulagsvald úr höndum sveitafélaga

Ég tel einsýnt að skipulagsvald verði tekið úr höndum sveitarfélaga.  Bæði Akureyrarbær og Reykjavíkurborg hafa gert sig sek um valdníðslu gagnvart eigendum bygginga með fyrirvaralausum aðgerðum er varða friðun og byggingarrétt.  Slíkt er ekki líðandi.  Eins hafa sveitarfélög að gamanmáli vandræði íbúa stórra sveitarfélaga varðandi t.d. umferðarmannvirki eins og t.d. Garðabær gagnvart Hafnfirðingum.  Það er hætta á að eldri hús brenni oftar ef svo fer fram sem horfir.

Besta ráðið er að taka skipulagsvald úr höndum sveitarfélag og afhenda það ríkinu.  Eins myndi það auðvelda skipulag stórra svæða eins og t.d. Höfuðborgarsvæðisins. 


mbl.is Vandaðri stjórnsýslu gefið langt nef
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frítt í öll jarðgöng - eða gjöld í öll jarðgöng

Nú er nóg komið af gjaldtöku í einum jarðgöngum þegar aðrir fá að aka frítt.  Þetta er ranglát og ósvífin skatttaka af hluta landsmanna, meðan aðrir fá að nota vegina án aukagjalds.  Það að Hvalfjarðargöngum hafi eitthvað verið flýtt, réttlætir engan vegin gjaldtöku í þeim umfram önnur umferðarmannvirki.  Ég vil líka benda á hvernig Færeyingar rukka í sín neðansjávargöng sem eru tvenn.  Þar er myndavél sem tekur myndir af öllum bílum sem aka um göngin.  Síðan geta menn valið um að hafa veglykil, borga gangnagjaldið á næstu bensínstöð samkvæmt myndatöku eða að fá sendan gíróseðil með tilheyrandi kostnaði.  Á þennan hátt má innheimta gangnagjald í Strákagöngum, Norðfjarðargöngum, Ólafsfjarðargöngum, Vestfjarðagöngum, Fáskrúðsfjarðargöngum og göngum undir Almannaskarð.  Það er sjálfsögð krafa okkar sem aka daglega um Hvalfjarðargöng að aðrir borgi líka fyrir afnot af svipuðum mannvirkjum.  Ef ekki, þá skora ég að bílstjóra að standa saman og aka um göngin án þess að greiða þar til allir borga fyrir afnot af jarðgöngum.
mbl.is Veggjald í Hvalfjarðargöngum lækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlusta kl. 11 á sjálfsmæringar Davíðs Oddssonar

Mikið verður gott fyrir þjóðina að heyra um heimsku mannanna þegar Davíð Oddsson mun kveða upp úr með heimsku annarra en sjálfs sín.  Þessi sjálfsskipaði sérfræðingur og alvitri bankastjóri sem var ráðinn til starfa að vel athuguðu máli þar sem hann sem sérfræðingur mat sjálfan sig sem hæfastan allra til að fara með stjórn peningamála í landinu.  Hann mun væntanlega segja frá því hvað aðilar atvinnulífsins séu barnalegir að halda að hægt sé að liðka til fyrir hóflegum kjarasamningum með því að lækka stýrivexti sem eru að sliga fólk og fyrirtæki í landinu.  Svo mun koma ræðan um heimsku þeirra sem vilja kasta þessari krónu hans.

Maður gæti bara gubbað ........


mbl.is Óbreyttir stýrivextir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Johnny B Good
Johnny B Good

Styð Liverpool - af því Bítlarnir eru þaðan.  Styð Skagamenn - af því að þeir eru bestir.  Finnst gaman að ræða um pólitík og fleira því tengdu.

Færsluflokkar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband